Undanfarið hafa hjúkrunardeildinni í Bolungarvík borist margar höfðinglegar gjafir.
Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur færði deildinni sófasett nú fyrir skömmu til nota í setustofu.
Bræðurnir Einar, Ómar og Bjarni Benediktssynir færðu deildinni fullkomna sjúklingalyftu í nóvember.
Einar Benediktsson færði deildinni nýtt 42″ sjónvarp nú fyrir skömmu.
Kvenfélagið Brautin, Kvennadeild SVFÍ og Sjálfsbjörg öll í Bolungarvík færðu deilinni kr. 300.000.- að gjöf.
Stofnunin og starfsfólk hennar þakkar ofangreindum aðilum kærlega fyrir þessar góðu gjafir.
Höf.:ÞÓ