Heilbrigðisráðuneytið hefur lagt fram nýja heilbrigðisstefnu fyrir íslensku þjóðina til ársins 2030. Stefnan verður kynnt á opnum fundum í öllum heilbrigðisumdæmum landsins á næstunni. Þriðjudaginn 18. júní kl. 17 verður fundur haldinn í fundarsal hjúkrunarheimilisins Eyri á Ísafirði.
Fjallað verður um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.
Beðið hefur verið eftir heildstæðri stefnu fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu frá því að stefnumótun sem Alþingi samþykkti árið 2001 rann sitt skeið árið 2010.
Í meginatriðum snýst heilbrigðisstefnan um um hvernig skapa megi heildstætt heilbrigðiskerfi fyrir alla landsmenn sem tryggir sjúklingum samfellda þjónustu á réttu þjónustustigi þar sem saman fara gæði, öryggi, skilvirkni og hagkvæmni.
Fundurinn á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði 18. júní hefst kl. 17.00.
Dagskrá:
- Kynning stefnunnar: Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
- Sýn forstjóra: Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
- Pallborðsumræður: Þátttakendur í pallborði auk frummælenda verða Helga Sif Friðjónsdóttir deildarstjóri göngudeildar geðsviðs Landspítala, Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri á Bolungarvíkurkaupstaðar, Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, Elsa B. Friðfinnsdóttir skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu.
Fundarstjóri verður Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Athygli er vakin á því að streymt verður beint frá fundinum og verður streymið aðgengilegt á síðu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á facebook.