Árleg bólusetning gegn inflúensu hefst þann 5. október og stendur til 27. nóvember. bólusett er á milli kl. 14:00 og 15:30 virka daga á Ísafirði og á opnunartíma í Bolungarvík, Suðureyri, Súðavík, Flateyri og Þingeyri. Vinsamlegast pantið tíma í síma 450-4500.

Árleg bólusetning gegn inflúensu A og B hafa nú verið framleidd fyrir veturinn 2015 – 2016 samkvæmt ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Þau innihalda eftirtalda stofna:

  • A/California/7/2009 (H1N1) – líkur stofn (A/California/72009, NYMC X-179A)*;
  • A/Switzerland/9715293/2013 (H3N2) – líkur stofn (A/South Australia/55/2014, IVR-175);
  • B/Phuket/3073/2013

                   * Svínainflúensuveira frá 2009

Hvað er inflúensa, hver eru einkennin og hvenær kemur hún?

Inflúensa er veisusýking sem einkennist af háum hita, þurrum hósta, höfuðverk, beinverkjum, oft með hálssærindum og nefrennsli. Einkennin koma snögglega. Árviss faraldur af völdum inflúensu A og oftast einnig af völdum inflúensu B hefst oft í desember eða janúar, en gera verður ráð fyrir að upphaf inflúensufaraldurs geti verið frá október til mars. Yfirleitt tekur 2 – 3 mánuði fyrir faraldur að ganga yfir.

Er inflúensa hættuleg?

Hætta er á alvarlegum fylgikvillum inflúensu er mest meðal aldraðra og fólks með bælt ofnæmiskerfi, en inflúensa leiðir á hverju ári til dauðsfalla meðal eldri borgara.

Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?

  • Öllum sem orðnir eru 60 ára
  • Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Heilbrigðisstarfsmönnum sem daglega annast fólk með aukna áhættu, sbr. ofantalið.
  • Þunguðum konum.

Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða þó komugjald.

Hversu mikil vörn er í bólusetningu?

Búast má við að bólesetning geti veitt a.m.k. 70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem hann verður vægari hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Sóttvarnalæknir leggur áherslu á að sem flestir verði bólusettir, ekki síst þeir sem tilheyra forgangshópum.

Ef þú þarft að fá ráðleggingar, hafðu þá samband við heilsugæslustöðina þína.

Höf.:ÞÓ