Upplýsingarit fyrir eldri borgara um almannatryggingar, ?Áfram veginn 2010? er komið á vef Sjúkratrygginga Íslands www.sjukra.is og vef Tryggingastofnunar www.tr.is.

Í ritinu er leitast við að svara helstu spurningum um lífeyristryggingar og sjúkratryggingar, sem upp koma við upphaf töku ellilífeyris og þegar sækja þarf heilbrigðisþjónustu. Ritið er aðgengilegt á pdf-formi á vefnum.

Áfram veginn hefur komið út árlega frá árinu 1999 Það er sent til allra sem eru að öðlast réttindi til töku ellilífeyris. Hægt er að panta ritið hjá Tryggingastofnun og Sjúkratryggingum Íslands með því að senda póst á netfangið tr@tr.is.


Höf.:ÞÓ