Hægt og rólega er starfsemi Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða að komast aftur í eðlilegt horf. Það gleður okkur sérstaklega að nú styttist í afléttingu heimsóknarbanns á deildum og hjúkrunarheimilum stofnunarinnar. Þar sem norðursvæði Vestfjarða kom verr út úr faraldrinum verða tilslakanir viku seinna á ferðinni þar en á suðursvæði. 

Heimsóknarbanni verður aflétt að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og ef allt gengur vel. Þá er íbúum heimilt að fara í bílferðir, heimsóknir og sinna afþreyingu utan heimilis. Tekið er mið af smitum í samfélaginu og fleiri þáttum við frekari ákvarðanir.

Á Patreksfirði verður heimsóknarbanni aflétt að fullu þann 2. júní. Fram að þeim tíma eru heimsóknir takmarkaðar og eru aðstandendur hvattir til að hafa samráð sín á milli með heimsóknir, ekki þarf að panta sérstaklega tíma. Frekari reglur og ábendingar hafa verið sendar aðstandendum í tölvupósti.

 
Á Norðursvæði; bráðadeildinni á Ísafirði og hjúkrunarheimilunum Bergi, Tjörn og Eyri, verður heimsóknarbanni aflétt að fullu frá og með 8. júní. Vikuna 1. – 7. júní eru þrjá heimsóknir leyfðar til íbúa. Um þær heimsóknir gilda ákveðnar reglur sem sendar hafa verið til aðstandenda í tölvupósti.
 

Áfram gildir samt sú regla að alls ekki á að koma í heimsókn ef:

1. Þú ert í sóttkví
2. Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku
3. Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift
4. Þú ert með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang, skert bragð og lyktarskyn o.fl.)
5. Ef komið er erlendis frá, þurfa að líða amk 2 vikur áður en komið er í heimsókn


Höf.:SLG