Sæl öll
Þar sem fulltrúi Velferðarráðuneytisins Fjóla María Ágústsdóttir komst ekki á áður auglýsta fundartíma er komin ný tímasetning á fundi hennar með starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Sameining heilbrigðisstofnana kynningar- og vinnufundir verða sem hér segir:
- Starfsfólk á sunnanverðum Vestfjörðum er hér með boðað á fund í matsal stofnunarinnar á Patreksfirði mánudaginn 20. október sbr. neðangreinda dagskrá.
- Fundur frá kl. 13:30 – 15:30
- Starfsfólk á norðanverðum Vestfjörðum er hér með boðað á fund í matsal á Torfnesi þriðjudaginn 21. október sbr. neðangreinda dagskrá. Sama dagskrá er á öllum fundunum.
- Fyrri fundurinn 12:30 – 14:30
- Seinni fundurinn 14:45 – 16:45
Mikilvægt er að sem flestir mæti og að stjórnendur deilda hliðri til eins og kostur er.
Höf.:ÞÓ