Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar að ráða kraftmikinn leiðtoga á hjúkrunarheimilið Berg í Bolungarvík. Um 70 til 90% starfshlutfall er að ræða með möguleika á bakvöktum á móti öðrum hjúkrunarfræðingum.
Aðstoðardeildarstjóri ber ábyrgð á mönnun, stjórnun og skipulagningu á daglegri starfsemi deildarinnar, í samvinnu við deildarstjóra.
Á Bergi eru 10 heimilismenn og einkennist starfsemin af góðum starfsanda, umhyggju og hlýju. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á sjúkra-, heilsugæslu- og hjúkrunarsviði. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Verkefni
- Vinnur í nánu samstarfi við deildarstjóra.
- Sinnir almennum hjúkrunarstörfum og ber ábyrgð á þeim.
- Skipuleggur vinnuframlag og mönnun deildarinnar í samræmi við hugmyndafræði, stefnu og rekstur.
- Skipuleggur vinnuskýrslur og heldur utanum skráningar í Vinnustund.
- Ber ábyrgð á gerð RAI mats á heimilisfólki, fylgist með niðurstöðum gæðastaðla og kemur með tillögur að úrbótum.
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Framhalds- eða sérmenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Sjálfstæði í starfi
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Laun
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.Tengiliður/ir
- Auður Helga Ólafsdóttir (audur.olafsdottir@hvest.is | )
- Hildur Elísabet Pétursdóttir (hildurep@hvest.is | )