Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða aðstoðarmanneskju í tímabundið starf á röntgendeild og slysadeild stofnunarinnar á Ísafirði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og verið fram í maí 2027. Starfshlutfall er 80% – 100% eða skv. samkomulagi og starfið er unnið í dagvinnu.
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Verkefni
Aðstoð við starfsfólk röntgen- og slysadeilda.
Hæfnikröfur
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Góð reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi
Laun
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Vestfirðinga hafa gert.Tengiliður/ir
- Hulda María Guðjónsdóttir (hulda.m.gudjonsdottir@hvest.is | )