Í dag 8. september, er alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar, World PT Day. Í ár er dagurinn tileinkaður hjarta- og æðasjúkdómum, heilablóðföllum og hlutverki sjúkraþjálfa í forvörnum, fræðslu og endurhæfingu í kjölfar þeirra. Sjúkraþjálfun gegnir mikilvægu hlutverki í heilbrigðisþjónustu þar sem þekking og þjónusta sjúkraþjálfara stuðlar að betri heilsu, virkni og lífsgæðum fólks.

Sjúkraþjálfarar greina og meðhöndla hreyfitruflanir og orsakir þeirra, hjá fólki sem er allt frá því að vera rúmliggjandi á sjúkrahúsum til þess að vera keppnisfólk í íþróttum. Þar að auki fást sjúkraþjálfarar við að koma í veg fyrir eða draga úr afleiðingum áverka, álagseinkenna, sjúkdóma og lífsstíls sem með truflun á hreyfingu geta raskað lífi einstaklingsins.Sjúkraþjálfun getur náð yfir margvíslega þætti, þar á meðal:

  • Nákvæmt mat á stoðkerfi og hreyfigetu
  • Greiningu á orsökum verkja, stirðleika eða færniskerðingar
  • Einstaklingsmiðaða meðferð, m.a. æfingaþjálfun, hreyfi- og styrktarþjálfun, teygjum og fræðslu
  • Handvirka meðferð og aðrar klínískar aðferðir sem stuðla að eðlilegri hreyfingu og verkjaminnkun
  • Endurhæfingu eftir aðgerðir, sjúkdóma eða slys
  • Ráðgjöf um líkamsbeitingu, vinnuvistfræði, forvarnir og lífsstílsþætti

Meginmarkmið sjúkraþjálfunar er að efla hreyfifærni, bæta þátttöku í daglegu lífi og stuðla að sjálfbærri heilsu til lengri tíma. Fagið byggir á fagmennsku, vísindalegri nálgun og virðingu fyrir einstaklingsbundnum þörfum fólks.

Sjúkraþjálfun er lykilþáttur í nútíma heilbrigðisþjónustu og stuðlar að því að einstaklingar geti lifað virku, sjálfstæðu og heilbrigðu lífi.
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða eru starfandi sex sjúkraþjálfarar, á Ísafirði, Bolungarvík og Patreksfirði. Starf þeirra er fjölbreytt og eru meðal þeirra sérfræðingur í sjúkraþjálfun aldraðra og sérfræðingur í sjúkraþjálfun barna. Sjúkraþjálfarar stofnunarinnar sinna öldrunarheimilum á svæðinu og sjúkradeildum, einstaklingsmiðari meðferð á göngudeild, ásamt verkum á vegum heimaþjónustu og heilsugæslu.