Ávarp forstjóra
Kæru íbúar Vestfjarða og starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, árið 2025 var bæði krefjandi og viðburðaríkt í starfsemi Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Mönnun og fjárhagur eru áfram megináskoranir, líkt og áður og almennt í heilbrigðiskerfinu. Sérfræðimönnun hefur reynst sérstaklega erfið, en við höfum unnið markvisst að lausnum sem styrkja stöðugleika í mannauðsmálum og munum halda ótrauð áfram á þeirri vegferð.
Mikil áskorun felst í því að tryggja lögbundna heilbrigðisþjónustu innan þeirra fjárheimilda sem stofnunin hefur. Rekstrarhalli ársins 2025 nam um 2,4%. Unnið er að ítarlegri greiningu á raunrekstri og því fjárframlagi sem stofnunin fær. Mat okkar er að fjárveitingar ríkisins endurspegli ekki að fullu fjárþörf grunnrekstrar. Við eigum þó gott og uppbyggilegt samstarf við Heilbrigðisráðuneytið um úrlausnir.
Það er okkur sönn ánægja að segja frá því að Heilbrigðisstofnun Vestfjarða kom best út allra heilbrigðisstofnana í árlegu könnuninni Stofnun ársins, sem lögð er fyrir starfsfólk ríkisstofnanna. Niðurstaðan staðfestir góða liðsheild, trausta forystu og sterka þjónustumenningu.
Stefna Hvest er skýr: að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu í okkar umdæmi, þar sem gildi okkar – virðing, samvinna, traust og jákvæðni – eru höfð að leiðarljósi í öllu okkar starfi.
Stofnunin hefur jafnframt notið ríkulegrar góðvildar úr nærumhverfinu. Okkur bárust fjölmargar gjafir á árinu, bæði stórar og smáar, í formi tækja, búnaðar og fjárframlaga. Slíkur stuðning sýnir samhug samfélagsins og hefur raunveruleg áhrif á gæði þjónustunnar.
Við færum einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum innilegar þakkir fyrir rausnina og þann hlýhug sem að baki býr.
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfar samhentur og hæfur hópur sem leggur sig fram um að veita örugga og góða þjónustu fyrir samfélagið og alla þá sem til okkar leita. Við munum halda áfram að efla þjónustu, tryggja viðeigandi mannafla, bæta húsnæði og endurnýja tækjabúnað.
Stjórnendum og starfsfólki færi ég bestu þakkir fyrir frábær störf og gott samstarf á árinu.
Lúðvík Þorgeirsson, forstjóri

Ársreikningar stofnunarinnar eru birtir á vef Fjársýslunnar, rikisreikningur.is.
Uppfært 29. júní 2026 (AG)