Starfseining: Heilsugæsla Suðursv., 450 Patreksfjörður
Umsóknarfrestur: frá 27.02.2025 til 24.03.2025.
Starfshlutfall: 100%
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að jákvæðum og drífandi einstakling til starfa í móttöku á Patreksfirði í 100% starf.
Móttakan er opin á milli 8:00 og 15:00 alla virka daga.
Verkefni
- Símsvörun og móttaka gesta,
- skráning í sjúkraskráningakerfi
- móttaka greiðslna og uppgjör
- Almenn skrifstofustörf og þátttaka í öðrum verkefnum deildarinnar.
Hæfnikröfur
- Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund
- Samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
- Stundvísi
- Metnaður og ábyrgð í starfi
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Laun
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Tengiliður/ir
- Elísabet Samúelsdóttir (elisabet.samuelsdottir@hvest.is | 4504500)