Starfseining: Röntgen, 400 Ísafjörður
Umsóknarfrestur: frá 08.10.2024 til 21.10.2024.
Starfshlutfall: 70-100%
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða geislafræðing á myndgreiningardeild stofnunarinnar á Ísafirði. Um afleysingu vegna fæðingarorlofs er að ræða frá 1. janúar 2025 til 1. júlí 2026 eða í amk eitt og hálft ár.
Starfshlutfall er 70 – 100% eða skv. samkomulagi, dagvinna með bakvöktum.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 270 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.
Ísafjarðarbær er paradís útivistarfólks og skiptir þá litlu í hvaða byggðarkjarna eða sveit fólk kemur sér fyrir. Óvíða ef nokkurs staðar er jafn stutt að fara úr iðandi mannlífi yfir í ósnortna náttúru og möguleikar til útivistar eru óteljandi, hvort sem er að sumri eða vetri.
Verkefni
- Geislafræðingur sinnir daglegum störfum á myndgreiningardeild sjúkrahússins og bakvöktum til móts við annað starfsfólk deildarinnar.
Hæfnikröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem geislafræðingur
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna í teymi
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Íslenskukunnátta skilyrði
Laun
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Tengiliður/ir
- Hulda María Guðjónsdóttir (hulda.m.gudjonsdottir@hvest.is | 450 4516)