Starfseining: Sími og upplýsingar, 400 Ísafjörður
Umsóknarfrestur: frá 03.07.2024 til 07.08.2024.
Starfshlutfall: -100%
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að þjónustuliprum, jákvæðum og sjálfstæðum einstakling til starfa í móttökunni á Ísafirði. Um er að ræða 100% starf eða eftir nánara samkomulagi.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 300 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Verkefni
Helstu verkefni móttökuritara eru móttaka viðskiptavina, tímabókanir, símsvörun, upplýsingagjöf, skráning í sjúkraskráningarkerfið Saga, móttaka greiðslu, uppgjör í lok dags, almenn skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnanda.
Móttaka og símsvörun er opin á milli 8:00 til 15:00 en stofnunin hefur innleitt betri vinnutíma með fullri vinnutímastyttingu.
Megin starfsstöð er á Ísafirði en móttökuritarar veita þjónustu fyrir alla stofnunina í gegnum síma, fjartækni, tölvupóst, vef- og samfélagsmiðla. Þjónusta er einnig á heilsugæsluseljum á norðursvæði (útstöðvar).
Hæfnikröfur
- Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og fagleg framkoma
- Stúdentspróf og/eða menntun í heilbrigðisgreinum kostur
- Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku og enskukunnátta áskilin
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Reynsla af móttöku- eða þjónustustörfum æskileg
Laun
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Tengiliður/ir
- Hanna Þóra Hauksdóttir (hanna@hvest.is | 8496210)