Sjúkradeild er á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Deildin hét áður bráðadeild, og stundum legudeild. Á deildinni eru 15 rými og er þar veitt afar fjölbreytt þjónusta vegna allra almennra veikinda.
Almennur heimsóknatími er frá kl. 15:00–16:00 og 19:00–20:00 alla daga vikunnar.
Göngudeild: Á deildinni eru gefin ýmis flókin lyf, einkum krabbameinslyf, en einnig lyf við MS og öðrum sjúkdómum þar sem lyfjagjöfin er flókin og krefst yfirsetu.
Blóðskilun: Blóðskilun er framkvæmd á deildinni fyrir sjúklinga sem hafa skerta starfsemi nýrna.
Hvíldar- og endurhæfingarinnlagnir: Í samstarfi við heimahjúkrunardeild og endurhæfingardeild er boðið upp á hvíldar- og endurhæfingarinnlagnir fyrir fólk sem býr sjálfstæðri búsetu en þarf aukna þjónustu.
Deildarstjóri er Þórunn Pálsdóttir og Sara Guðmundsdóttir er aðstoðardeildarstjóri.
Uppfært 3. júlí 2024 (HEP)