Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði stendur konum til boða samfelld þjónusta ljósmóður í meðgönguvernd, fæðingu og sængurlegu. Einnig má leita til ljósmóður í tengslum við brjóstagjöf frá fæðingu og út brjóstagjafatímabilið. Áhersla er lögð á vandaða og persónulega þjónustu og aðstaða fæðingardeildarinnar gerir okkur kleift að bjóða upp á samveru beggja foreldra og barns fyrstu dagana eftir fæðingu.
Fæðingadeildin hefur yfir að ráða rúmgóðri fæðingarstofu með baði, sturtu og snyrtingu. Á deildinni eru einnig tvær heimilislegar sængurlegustofur með hjónarúmum auk einnar minni stofu með einstaklingsrúmi. Þá er einnig setustofa, lítil barnastofa og snyrting með sturtu.
Á hverju ári eru um 40-60 konur í meðgönguvernd hér á Ísafirði. Á fæðingardeildinni er tekið á móti um 30-40 börnum á ári. Konum sem stríða við fylgikvilla á meðgöngu eða hafa undirliggjandi sjúkdóma er einnig veitt göngudeildarþjónusta á fæðingardeildinni og unnið í nánu samstarfi við áhættumeðgönguvernd LSH þegar við á.
Val á fæðingarstað
Öllum heilbrigðum konum sem eiga að baki eðlilega meðgöngu einbura og þeim konum sem hafa væga fylgikvilla stendur til boða að fæða hér. Langflestar konur sem koma hér inn til fæðingar geta vænst þess að fæðing gangi eðlilega fyrir sig. Á stofnuninni er samt sem áður aðgangur að skurðstofu allan sólahringinn ef á þarf að halda. Á árunum 2015-2020 fæddust tæp 12% barna með keisaraskurði og þar af var fimmtungur aðgerða fyrirfram ákveðin.
Alltaf eru einhverjar konur sem hér hafa verið í meðgönguvernd sem af einhverjum ástæðum þurfa eða kjósa að fæða á öðrum fæðingarstöðum. Langflestum þeirra stendur til boða að liggja sængurlegu hér á deildinni eða fá þjónustu ljósmóður heim og sjálfsagt að ræða þau mál við ljósmóður.
Stuðningur í fæðingu
Mikilvægt er að konur í fæðingu njóti góðs stuðnings maka og/eða annarra nákominna en geti jafnframt fætt ótruflaðar í rólegu umhverfi. Eru konur því hvattar til að velja með sér þá fæðingarfélaga sem þær treysta best til að veita sér stuðning en bent er á að fjöldi áhorfenda í fæðingu er sjaldnast til bóta.
Heimsóknir á fæðingardeild
Miklu máli skiptir að sængurkonur geti hvílst vel að fæðingu lokinni, nýbakaðir foreldrar og systkini hafi næði til að mynda tengsl við nýburann og mæður hafi nægan tíma til að koma brjóstagjöf af stað. Því er farið fram á það að heimsóknum til sængurkvenna sé haldið í lágmarki og bent á að þær eru aðeins ætlaðar nákomnum. Allir heimsóknagestir eru hvattir til að þvo sér vel um hendur áður en heilsað er upp á sængurkonur og vegna hættu á sýkingum eru heimsóknir barna yngri en 12 ára, annarra en systkina ekki ráðlagðar.
Deildarstjóri fæðingardeildar er Kristín Gréta Bjarnadóttir. Aðrar fastráðnar ljósmæður eru Guðrún Anna Valgeirsdóttir og Málfríður Stefanía Þórðardóttir. Hægt er að fá samband við þær á dagvinnutíma ef hringt er í aðalnúmer heilbrigðisstofnunarinnar, 450 4500.
Ef fæðing er í aðsigi eða önnur bráðatilvik má ná í ljósmóður í vaktsíma 860 7455.
Uppfært 3. júlí 2024 (HEP)