Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða sjúkraliða í 70-100% starf í sumar.
Hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 300 manns og veitir stofnunin almenna heilbrigðisþjónustu á þremur sviðum; hjúkrunarsviði, heilsugæslusviði og sjúkrasviði, með sjúkrahús á Ísafirði og Patreksfirði.
Í teyminu er lögð rík áhersla á góða samvinnu, góðan starfsanda og að virðing sé borin fyrir samstarfsfólki og skjólstæðingum.
Verkefni
Um er að ræða almenn störf sjúkraliða á sjúkradeild. Hér er gott tækifæri fyrir reynslumikinn sjúkraliða sem langar að breyta um umhverfi og eyða sumrinu í faðmi fjalla á Ísafirði. Þetta er einnig kjörin staða fyrir þá sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu.
Á deildinni starfar öflugur hópur og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði.
Hæfnikröfur
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Laun
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.Tengiliður/ir
- Þórunn Pálsdóttir (thorunn@hvest.is | 4504500)