Ávarp Forstjóra
Árið 2024 var viðburðaríkt í rekstri og starfsemi Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða – líkt og svo oft áður. Rekstur heilbrigðisstofnana er jafnan krefjandi verkefni og er HVest þar engin undantekning. Við enduðum árið með lítilsháttar halla, og má helst rekja hann til kostnaðar við rekstur hjúkrunarrýma.
Mönnun sérfræðinga hefur verið veruleg áskorun, en við höfum lagt okkur fram um að finna lausnir sem tryggja stöðugleika í mannauðsmálum. Við höldum ótrauð áfram í þeirri vegferð.
Það er okkur mikið fagnaðarefni að HVest hlaut hæstu einkunn til þessa í könnun um stofnun ársins. Það er skýr staðfesting á því góða starfi sem okkar öfluga og faglega starfsfólk sinnir. Þrátt fyrir áskoranir einkennist starfsemin af fagmennsku og jákvæðni.
Við höfum átt gott og árangursríkt samstarf við Framkvæmdasýslu ríkisins varðandi viðhaldsverkefni og endurbætur á húsnæði stofnunarinnar. Þau verkefni munu halda áfram á nýju ári og stuðla að bættri starfsaðstöðu og þjónustu.
Nýtt skipurit tók svo gildi þann 1. janúar 2025. Með því var stjórnskipulag stofnunarinnar einfaldað og skilvirkni aukin, sérstaklega hvað varðar faglega og rekstrarlega ábyrgð.
Stefna HVest er skýr: að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu í okkar umdæmi, þar sem gildi okkar – virðing, samvinna, traust og jákvæðni – eru höfð að leiðarljósi í öllu okkar starfi.
Samfélagið á Vestfjörðum hefur sýnt okkur mikinn og dýrmætan stuðning, sem er ómetanlegur fyrir stofnunina. Fyrir það vil ég þakka af einlægni. Þá vil ég einnig færa starfsfólki HVest bestu þakkir fyrir ómetanlegt starf og mikla fagmennsku. Það er okkar keppikefli að HVest sé eftirsóknarverður og góður vinnustaður.
Fyrir mig persónulega voru tímamót þegar ég var skipaður forstjóri stofnunarinnar þann 1. mars 2024. Ég vil þakka fyrir hlýjar móttökur og velvild frá starfsfólki og samfélaginu í heild. Það er mér sönn ánægja að starfa og búa í þessu sterka og samheldna vestfirska samfélagi – og ég hlakka mikið til áframhaldandi samstarfs á komandi árum.
Með bestu kveðju,
Lúðvík Þorgeirsson
Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

Ársreikningur 2024
Gjöld hækkuðu á milli ára um 495 milljónir króna eða 12,4%. Tekjur hækkuðu minna eða um 355 milljónir króna eða 9%. Verðbólga árið 2024 var 6% að meðaltali. Vægi launakostnaðar var 70% eins og árið á undan og hækkaði launakostnaður um 273 milljónir króna milli ára eða 9,7%. Meðalfjöldi stöðugilda var 224. Vægi annars rekstrarkostnaðar var 30% og hækkaði um 213 milljónir króna eða 18,9%. Hækkun má rekja fyrst og fremst til hækkunar á sérgreindum vörukaupum sem og húsnæðis- og ferðakostnaði vegna afleysinga og sérfræðiþjónustu. Afskriftir hækka um 8 milljónir króna eða 23,3%. Vægi seldrar þjónustu var 6,4% og hækkaði um 47 milljónir króna eða 19,1% á milli ára. Hækkun má rekja til sérfræðiþjónustu, gjalda fyrir vistun og ýmissa þjónustutekna. –ES
Tekjur | 2024 | 2023 |
Tekjufærsla fjárveitinga | 4.042.093.245 | 3.737.781.712 |
Seld þjónusta | 282.099.453 | 234.628.856 |
Framlög og ýmsar tekjur | 23.209.651 | 28.701.457 |
Vaxtatekjur, verðbætur og gengishagnaður | 101.602 | 106.721 |
Tekjufærsla frestaðra tekna fyrri ára | 43.570.424 | 35.347.438 |
Tekjur samtals | 4.391.076.399 | 4.036.566.184 |
Gjöld | ||
Laun, launatengd gjöld og starfsmannakostnaður | 3.087.084.595 | 2.813.279.179 |
Annar rekstrarkostnaður | 1.342.242.165 | 1.129.280.034 |
Vaxtagjöld, verðbætur og gengistap | 48.961 | 40.336 |
Afskriftir og niðurfærslur | 43.570.424 | 35.347.438 |
Gjöld samtals | 4.472.946.145 | 3.977.946.987 |
Afkoma ársins | -81.869.746 | 58.619.197 |
Bergljót Pálmadóttir kvödd og þökkuð góð störf.
Árið 2024 hætti einn starfsmaður vegna aldurs. Bergljót Pálmadóttir hefur verið eitt af andlitum stofnunarinnar til margra ára. Við höfum verið afar heppin að hafa notið starfskrafta hennar öll þessi ár og þökkum henni kærlega fyrir vel unnin störf í þágu stofnunarinnar og skjólstæðinga hennar.

Framkvæmdastjórn 2024






Uppfært 28. maí 2025 (LÞ)