Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar eftir að ráða starfsmann í 95% ræstingastöðu.
Starfið felst í því að þrífa á bráðadeild, á Eyri, í apóteki, á lager og á fæðingardeild.
Vinnutími er 8-16 og aðra hvora helgi.
Laun eru skv. kjarasamningum.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Hulda Guðjónsdóttir, ræstingastjóri í s: 860-7445 og/eða á netfangi: kristinhulda@hvest.is.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, Torfnesi, 400 Ísafirði.
Umsóknareyðublað er að finna á vefnum www.hvest.is og/eða í afgreiðslu stofnunarinnar á Ísafirði.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin.
Höf.:SÞG