Starfseining: Heilsugæsla Norðursv., 400 Ísafjörður Umsóknarfrestur: frá 20.11.2026 til 07.12.2026. Starfshlutfall: 100%

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða auglýsir lausar til umsóknar tvær sérnámsstöður í heimilislækningum á Ísafirði. Stöðurnar eru lausar frá 1. mars 2027. Ráðning er með fyrirvara um samþykki kennsluráðs sérnáms í heimilislækningum á Íslandi. Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu (ÞÍH) heldur utan um sérnámið á landsvísu, https://throunarmidstod.is/kennsla/sernam-i-heimilislaekningum/.

Boðið er upp á góða aðlögun í starfi og aðstoð við öflun húsnæðis auk annarra hlunninda. 

Á Vestfjörðum færðu ekki aðeins fjölbreytt og spennandi sérnám, heldur líka einstök lífgæði, náttúruna rétt handan við hornið og góða tekjumöguleika.

Sérnámið:

Sérnámið fer fram undir virkri handleiðslu sérfræðings í heimilislækningum sem fylgir sérnámslækni eftir allan námstíman. Sérnámslæknir skipuleggur nám sitt í samráði við handleiðara og kennslustjóra sérnáms. Námið fer fram á heilsugæslustöð og sjúkrahúsi. 

Kostir sérnáms: 

  • Starfsnám undir virkri handleiðslu reyndra sérfræðinga 
  • Einstaklingsmiðuð námsáætlun 
  • Hópkennsla annan hvern mánudag 
  • Þátttaka í vísindavinnu 
  • Blokkasamningur við Landspítala varðandi spítalahluta sérnámsins 

Nánari upplýsingar um sérnámið veitir Kristún Guðmundsdóttir, yfirlæknir heilsugæslu. kristrun.gudmundsdottir@hvest.is

Verkefni

  • Almennar lækningar og heilsuvernd 
  • Viðbragðsvaktir
  • Samvinna þvert á stofnunina með öðrum fagaðilum
  • Nám samhliða starfi 
  • Rannsóknir og gæðastarf

Hæfnikröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi 
  • Mjög góðir samskiptahæfileikar, fagmennska og jákvæðni 
  • Hæfni og vilji til að vinna náið með skjólstæðingum og samstarfsfólki 
  • Frumkvæði, faglegur metnaður og geta til að starfa sjálfstætt 
  • Vandvirkni og samviskusemi
  • Lausnamiðuð hugsun og vinnubrögð 
  • Vilji til þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu 
  • Áhugi á vísindavinnu æskilegur 

Laun

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Tengiliður/ir

Sækja um

Smelltu hér til að sækja um starfið