Starfseining: Heilsugæsla Heimahjúkrun, 400 Ísafjörður
Umsóknarfrestur: frá 27.01.2023 til 13.03.2023.
Starfshlutfall: 70-100%
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða ófaglærða starfsmenn í sumarafleysingu á heimahjúkrunardeild á Ísafirði.
Verkefni
Megin hlutverk starfsfólks er að heimsækja, aðstoða og annast um skjólstæðinga á heimilum þeirra. Vinnutími er á morgunvöktum á virkum dögum og á 4 klst kvöldvöktum. Unnið er aðra til þriðju hverja helgi.
Hæfnikröfur
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Starfsreynsla æskileg
Laun
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Tengiliður/ir
- Heiða Björk Ólafsdóttir (heidabjork@hvest.is | 450 4500)