Starfseining: Heilsugæsla Norðursv., 400 Ísafjörður
Umsóknarfrestur: frá 27.01.2023 til 13.03.2023.
Starfshlutfall: 100%
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða sjúkraliða í sumarafleysingu á heilsugæslustöðina á Ísafirði.
Verkefni
Sjúkraliði sinnir fjölbreyttum störfum sem til falla á heilsugæslu. Má þar nefna mæling lífsmarka, spirometriur, holter rannsóknir, sýnatökur v/covid, ljósameðferðir, heyrnamælingar, panta vörur, annast sótthreinsun og fleira.
Hæfnikröfur
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund
- Samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
- Stundvísi
- Metnaður og ábyrgð í starfi
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Íslenskukunnátta
Laun
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Tengiliður/ir
- Magnea I Hafsteinsdóttir (magnea.hafsteinsdottir@hvest.is | 450 4500)