Starfseining: Fæðingardeild, 400 Ísafjörður
Umsóknarfrestur: frá 27.01.2023 til 13.03.2023.
Starfshlutfall: 80-100%
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða ljósmóður í sumarafleysingar frá 1. júní 2023 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 80% – 100% starf í dagvinnu ásamt bakvöktum. Möguleiki er á afleysingu til lengri eða styttri tíma.
Verkefni
Störf ljósmóður felast meðal annars í fæðingarhjálp, umönnun sængurkvenna og nýbura á sjúkrahúsi og í heimahúsum ásamt mæðra- og ungbarnavernd á heilsugæslustöð. Tvær ljósmæður skipta á milli sín daglegum verkum og bakvöktum utan dagvinnu.
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunar- og ljósmóðurleyfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Starfsreynsla æskileg
Laun
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Tengiliður/ir
- Erla Rún Sigurjónsdóttir (erlars@hvest.is | 696 9719)
- Hildur Elísabet Pétursdóttir (hildurep@hvest.is | 695 2222)