Starfseining: Rannsókn, 400 Ísafjörður

Umsóknarfrestur: frá 04.04.2023 til 31.05.2023.

Starfshlutfall: 75-100%


Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða lífeindafræðing á rannsóknadeild stofnunarinnar á Ísafirði frá 1. september 2023 eða skv. samkomulagi. Starfshlutfall er 75 – 100% eða skv. samkomulagi og starfið er unnið í dagvinnu með bakvöktum. 

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 250 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Ísafjarðarbær er paradís útivistarfólks og skiptir þá litlu í hvaða byggðarkjarna eða sveit fólk kemur sér fyrir. Óvíða ef nokkurs staðar er jafn stutt að fara úr iðandi mannlífi yfir í ósnortna náttúru og möguleikar til útivistar eru óteljandi, hvort sem er að sumri eða vetri. 

Verkefni

Lífeindafræðingur vinnur dagleg störf á rannsóknadeild sjúkrahússins. 

Rannsóknastofa HVest er með rannsóknir í blóðmeinafræði, klínískri lífefnafræði, sýklafræði og er með mini blóðbanka.

Rannsóknastofan sinnir þjónustu við sjúkrahúsið og heilsugæsluna.

 

 

Hæfnikröfur

  • Starfsleyfi Landlækinsembættisins til þess að starfa sem lífeindafræðingur 
  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni 
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi 
  • Góð reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi

Laun

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.

Tengiliður/ir

Sækja um

Smelltu hér til að sækja um starfið