Starfseining: Bráðadeild, 400 Ísafjörður
Umsóknarfrestur: frá 07.06.2022 til 29.06.2022.
Starfshlutfall: 70-100%
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar að ráða hjúkrunarfræðing til starfa á Ísafirði. Um er að ræða 70-100% starf.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis. Gert er ráð fyrir að upphaf starfs verði 1. ágúst 2022 eða skv. samkomulagi.
Verkefni
Hjúkrunarfræðingur sinnir almennum hjúkrunarstörfum á blandaðri sjúkradeild. Deildin sinnir auk þess sængurkonum og nýburum utan dagvinnu ljósmóður, annast göngudeild fyrir krabbameinslyfjagjafir og aðrar sérhæfðar lyfjagjafir auk þess að aðstoða við slysamóttöku á slysadeild utan dagvinnutíma. Hér er gott tækifæri fyrir reynslumikinn hjúkrunarfræðing sem langar að breyta um umhverfi. Þetta er einnig kjörin staða fyrir þá sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu í alhliða hjúkrun.
Á deildinni starfar öflugur hópur um 25 hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði.
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Laun
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tengiliður/ir
- Rannveig Björnsdóttir (rannveig@hvest.is | 450 4500)
- Þórunn Pálsdóttir (thorunn@hvest.is | 450 4500)