Að gera einstaklingi kleift að dveljast heima við eðlilegar aðstæður eins lengi og það er unnt miðað við heilsufar og félagslegar aðstæður, í náinni samvinnu við einstaklinginn sjálfan og aðstandendur.
Hverjir fá heimahjúkrun?
Þeir sem búa á þjónustusvæði Heilbrigðisstofnunarinnar og þurfa á henni að halda að mati hjúkrunarfræðings heimahjúkrunar eða læknis Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Hvernig fæ ég heimahjúkrun?
Með skriflegri beiðni frá lækni til heimahjúkrunar.
Hvað felst í heimahjúkrun?
Heimahjúkrun er byggð á vitjunum. Hjúkrunarfræðingur heimahjúkrunar kemur í fyrstu vitjun og metur hjúkrunarþörfina. Í framhaldi af því sér hjúkrunarfræðingur og sjúkraliðar heimahjúkrunar um umönnun. Umönnun felur í sér:
Almenna aðhlynningu
Persónulegt hreinlæti
Aðstoð við böðun
Lyfjagjafir
Lyfjatiltekt
Sáraskiptingar
Aðra hjúkrunaraðstoð
Andlegan stuðning
Ráðgjöf og stuðning
Stefnt er að því að gera einstakling eins sjálfbjarga og óháðan og unnt er, miðað við heilsu og líkamsþrek. Hjálpin á að vera hjálp til sjálfsbjargar.
Hvað felst ekki í heimahjúkrun?
Að koma á föstum tíma í vitjun
Að koma í vitjanir fyrirvaralaust
Að vera hjá eða vaka yfir sjúklingi
Hjálpartæki
Ýmis hjálpartæki standa til boða. Þau létta þeim lífið sem hjúkrunina fá og létta þeim störfin sem hjúkrunina veita. Tryggingarstofun ríkisins tekur þátt í greiðslu á hjálpartækjum ef beiðni er undirskrifuð af lækni.
Gott að vita
Heimahjúkrun er einstaklingi að kostnaðarlausu.
Heimahjúkrun getur ýmist verið tímabundin eða til lengri tíma.
Fari einstaklingur að heiman eða aðrara breytingar verða á högum hans sem nauðsynlegt er fyrir heimahjúkrun að vita, þarf að tilkynna það.