Frekari Útskýring á símanúmerum
FORSÍÐA SÍMANÚMER OG OPNUNARTÍMAR STARFSFÓLK VERÐSKRÁ LAUS STÖRF POLSKI ENGLISH
Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ
HEILSUGÆSLA / MÆÐRAVERND

Mæðravernd

Mæðravernd er með hefðbundnum hætti. Í fyrstu komu er gefinn góður tími fyrir verðandi foreldra og lögð áhersla á fræðslu um meðgöngu og tilgang mæðraverndar. Öllum konum er boðið upp á 19 vikna ómskoðun. Þar á eftir er gefið út vottorð um væntanlega fæðingu og foreldrum afhent vegleg barnamappa með fræðslu um fæðingu og ungbarnið.

Konum er auk þess boðið að hitta ljósmóður á fæðingadeild til að fræðast um fæðingu og sængurlegu.

Markmið með mæðravernd er að stuðla að öryggi og heilbrigði kvenna á meðgöngutímanum og að barnið geti fæðst heilbrigt og lífvænlegt. Komi upp einhver vandamál er hægt að taka á þeim nógu snemma ef eftirlit er reglulegt.

Fyrsta skoðun

Ljósmóðir gerir nákvæma mæðraskrá. Farið er í fyrri meðgöngur og fæðingar konunnar auk félagslegra aðstæðna. Konu er ráðlagt um mataræði, vítamín og hollustuhætti og er bent á fræðslurit til frekari glöggvunar. Sjálf mæðraskoðunin felst í þyngdarmælingu, blóðprufu og þvagprufu.

Eftir fyrstu skoðun

Undir venjulegum kringumstæðum eru konur skoðaðar sex sinnum eftir fyrstu skoðun auk ómskoðunar. Í skoðunum eru ýmsar prufur teknar og konum er ráðlagt varðandi hreyfingu, næringu, verki, andlegar hliðar fæðingar, brjóstagjöf og margt fleira. Skoðanir eru undir venjulegum kringumstæðum á vissum tímabilum meðgöngu: Eftir 16-20 vikur, 20-28 vikur, á 28 viku, eftir 32-34 vikur, 36-38 vikur og að lokum eftir 41-42 vikur.

Eftirskoðun

Flestar konur koma í eftirskoðun 6-10 vikum eftir fæðingu. Þá er m.a. fræðsla um getnaðarvarnir.  

Tenglar

Mataræði og lífstíll íslenskra kvenna á meðgöngu - bæklingur frá Heilsugæslu Reykjavíkur

Ljósmóðir.is

Fróðleikur um meðgöngu á Doktor.is
 Læknavakt 863-8000   Neyðarlínan 112 (sjúkrabíll, lögregla, slökkvilið)
FYRST OG FREMST
HEILSUGÆSLA
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
STJÓRNSKIPULAG
STOÐDEILDIR
ÖNNUR ÞJÓNUSTA
SAGA HSÍ
VINNUSTUND
ISLAND.IS
FRÆÐSLA
PÓLSK-ÍSLENSK ORÐABÓK
NÝBURAR
YTRI TENGLAR
SAMTÖK OG FRÓÐLEIKUR
OPINBER STJÓRNSÝSLA
FAGFÉLÖG
MENNTASTOFNANIR
ERLENDIR TENGLAR
LÝÐHEILSUSTÖÐ
ÍSAFJÖRÐUR
HEILBRIGÐISSTOFNANIR
PÓSTLISTI
Netfang:
Aðgerð:
FYRIRSPURN
Senda fyrirspurn á:
Nafn:
Netfang:
Titill:
Fyrirspurn:


Við ábyrgjumst ekki að svar berist innan neinna ákveðinna tímamarka