Starfsemi Heilsugæslustöðvarinnar á ÍsafirðiHeilsugæslustöðin veitir almenna heilsugæsluþjónustu fyrir íbúa í Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhreppi. Starfssemin er í austurálmu fyrstu hæðar sjúkrahússins að Torfnesi. Læknar heilsugæslunnar fara í hverri viku til Súðavíkur, Suðureyrar, Þingeyrar og Flateyrar.

Öll almenn læknisþjónusta, hjúkrun og heilsuvernd fer fram á heilsugæslunni, sem og stjórnun á heilbrigðisfræðslu svæðisins. Sjúklingar panta tíma hjá læknum og hjúkrunarfræðingum heilsugæslunnar í síma 450-4500, en einnig er boðið upp á símaviðtöl sem yfirleitt fara fram kl. 11-12. Heilsugæslan er opin á virkum dögum kl. 9-16, en á öðrum tímum er læknavakt fyrir aðkallandi vandamál sem ekki geta beðið hefðbundins opnunartíma. Símanúmer læknavaktar er 863-8000.
Meðal þess sem flokkast undir starfsvettvang heilsugæslunnar er:
|