Öldrunarþjónusta / Heimahjúkrun
Markmið heimahjúkrunar
Að gera einstaklingi kleift að dveljast heima við eðlilegar aðstæður eins lengi og það er unnt miðað við heilsufar og félagslegar aðstæður, í náinni samvinnu við einstaklinginn sjálfan og aðstandendur.
Hverjir fá heimahjúkrun?
Þeir sem búa innan lögsagnarumdæmis Ísafjarðarbæjar og þurfa á henni að halda að mati hjúkrunarfræðings heimahjúkrunar eða læknis Heilbrigðisstofnunar Ísafjarðarbæjar.
Hvernig fæ ég heimahjúkrun?
Með skriflegri beiðni frá lækni til heimahjúkrunar.
Hvað felst í heimahjúkrun?
Heimahjúkrun er byggð á vitjunum. Hjúkrunarfræðingur heimahjúkrunar kemur í fyrstu vitjun og metur hjúkrunarþörfina. Í framhaldi af því sér hjúkrunarfræðingur og sjúkraliðar heimahjúkrunar um umönnun. Umönnun felur í sér:
- Almenna aðhlynningu
- Persónulegt hreinlæti
- Aðstoð við böðun
- Lyfjagjafir
- Lyfjatiltekt
- Sáraskiptingar
- Aðra hjúkrunaraðstoð
- Andlegan stuðning
- Ráðgjöf og stuðning
Stefnt er að því að gera einstakling eins sjálfbjarga og óháðan og unnt er, miðað við heilsu og líkamsþrek. Hjálpin á að vera hjálp til sjálfsbjargar.
Hvað felst ekki í heimahjúkrun?
- Að koma á föstum tíma í vitjun
- Að koma í vitjanir fyrirvaralaust
- Að vera hjá eða vaka yfir sjúklingi
Hjálpartæki
Ýmis hjálpartæki standa til boða. Þau létta þeim lífið sem hjúkrunina fá og létta þeim störfin sem hjúkrunina veita. Tryggingarstofun ríkisins tekur þátt í greiðslu á hjálpartækjum ef beiðni er undirskrifuð af lækni.
Gott að vita
- Heimahjúkrun er einstaklingi að kostnaðarlausu.
- Heimahjúkrun getur ýmist verið tímabundin eða til lengri tíma.
- Fari einstaklingur að heiman eða aðrara breytingar verða á högum hans sem nauðsynlegt er fyrir heimahjúkrun að vita, þarf að tilkynna það.
Hvert skal hringja?
- Heilbrigðisstofnunin: 450-4500
- Heilsugæslan: 450-4514
- Heimahjúkrun: 450-4537
- Sjúkraliðar (kl. 8-16) 860-7449
Hvenær fæ ég heimahjúkrun?
Alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00 og um helgar frá kl. 8:00 til 12:00. Ef þörf er fyrir meiri þjónustu skal beiðni berast frá lækni.
Upplýsingar um frekari þjónustu eru í bæklingnum “Þjónusta við elli- og örorkulífeyrisþega í Ísafjarðarbæ” sem má fá á Fjórðungssjúkrahúsinu.