Heilsugæsla
Heilsugæslan annast allar almennar bólusetningar:
- Bólusetningar barna og fullorðina
- Ferðamannabólusetningar - frekari upplýsingar fást á heimasíðu Landlæknisembættisins
- Bólusetningar við inflúensu og lungnabólgu
Hvað er bólusetning
Bólusetning er ónæmisaðgerð sem ætlað er að koma í veg fyrir alvarlegan smitsjúkdóm. Bóluefnin eru ýmist unnin úr veikluðum veirum eða bakteríum eða þau innihalda efni sem finnast í þessum sýklum. Bóluefnin sjálf valda litlum einkennum, en vekja upp mótefnasvörun í líkamanum sem kemur í veg fyrir eða dregur úr líkum á að fólk veikist af sjúkdómnum sem bólusett er gegn.
Sjá frekari fróðeik um bólusetningar á heimasíðu Landlæknisembættisins.