Forseti Íslands herra Guðni Th. Jóhannesson heimsótti íbúa Eyrar síðasta sunnudag. Hann ræddi við íbúa og drakk með þeim þeim morgunkaffi. Forsetinn var í óopinberri ferð hér vestra og gaf sér tíma fyrir heimferð til að heimsækja allar deildir á hjúkrunarheimilinu Eyri. Að vonum vorum íbúar og starfsfólk ánægt með heimsóknina og er Guðna þakkað kærlega fyrir komuna.


Júlíana Kristín Jónsdóttir, Stella, og herra Guðni Th. Jóhannesson forseti á tali

Höf.:SLG