Allt á floti alls staðar!
25.01 2005 | Svavar Þór Guðmundsson
Um kl. 19:30 í gærkvöldi fór að flæða inn í kjallara Endurhæfingardeildar Heilbrigðisstofnunarinnar.
Var ekki við neitt ráðið og urðu öll herbergi deildarinnar umflotin innan skammrar stundar. Stuttu síðar fór að vella upp um niðurföll í vesturálmu hússins, mest í gamla þvottahúsinu. Var starfsfólk kvatt á staðinn til að hamla gegn framgangi vatnsins en ekkert fór að ganga fyrr en öflugur dælubíll kom á svæðið og dældi upp úr brunnum í nágrenni hússins og fyrir framan innganginn í kjallarann en þar hafði nokkurt magn vatns safnast saman. Það var síðan um miðnættið sem högg fór að sjást á vatni og var hreinsun lokið með dyggri hjálp slökkviliðs Ísafjarðarbæjar um eittleytið í nótt.
Vill stofnunin þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn til að koma í veg fyrir frekari skaða af völdum vatnsins. Ekki liggur fyrir hve skemmdir eru miklar.